Félag MT sjúkraþjálfara (Manual Therapy)

Stjórn Félags MT sjúkraþjálfara:

Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir, Hs: 552 6600, Vs: 858 7389, email: hofi-mt@hotmail.com
Hún er formaður félagsins

Elías Jörundur Friðriksson, Hs: 481 1363, Vs: 481 1955, email: eliasf@simnet.is
Hann er meðstjórnandi félagsins

Gísli Sigurðsson, Hs: 551 5909, Vs: 699 0224, email: gislis@internet.is
Hann er gjaldkeri félagsins

Aðrir tengiliðir við Félag MT sjúkraþjálfara:

Ágúst Jörgensson; Vs:5511120, e-mail:
agust@stja.is

Elísabet Kristjánsdóttir;Vs:4312442, e-mail: e.kristjansd@aknet.is

Guðmundur Þór Brynjólfsson; Vs:5111575, e-mail: gudmundurb@hotmai.com

Guðmundur Rafn Svansson; Vs:5678577, e-mail: gudmrafn@simnet.is

Gunnhildur Ottósdóttir; Vs:5683660, e-mail: mtstofan@media.is

Héðinn Svavarsson;Vs:5870122, e-mail: hedinnjona@simnet.is

Oddný Sigsteinsdóttir;Vs:5683660: borgir@simnet.is


Heimasíður:  www.ifomt.org

Manual Therapy
Manual Therapy (MT) er ein sérgreina sjúkraþjálfunar. Rannsóknir og klínísk reynsla hafa sýnt að Manual Therapy er mjög árangursrík meðferð við einkennum frá hreyfi- og stoðkerfi líkamans. Má þar nefna brjósklos, bakverk, þursabit, millirifjagigt, höfuðverk, hálsríg, vöðvabólgur, tennisolnboga, frosna öxl og slitgigt í mjöðm og hné. 

Sérkenni Manual Therapy eru fyrst og fremst fólgin í því að lögð er áhersla á nákvæma greiningu á eðli og staðsetningu kvillans. Ítarleg þekking á uppbyggingu og starfssemi líkamans og skoðunarhæfni sjúkraþjálfarans vinna saman að greiningu, sem leiðir til hnitmiðaðrar meðferðar. 

Sjúkdómsgreiningin
Í Manual Therapy er sjúkdómsgreiningin aðalatriðið. MT sjúkraþjálfarinn metur hvort til staðar eru hreyfitruflanir er geta valdið einkennum sjúklings. Einnig er ástand mjúkvefja metið. Aðrar rannsóknir eru hafðar til hliðsjónar, svo sem röntgen, segulómun og blóðprufur.

 

 

Meðferðin
Meðferðin beinist að því að minnka verki, liðka stirð líkamssvæði og styrkja svæði sem eru ofhreyfanleg. Einnig eru líkamsskekkjur leiðréttar. 

Helstu meðferðarform eru:
-sérhæfðar hreyfiaðferðir til liðlosunar eða sem verkjameðferð 
-hnykkingar 
-tog 
-nudd og ýmsar vöðvaslökunaraðferðir
-vöðvateygjur
-aðferðir til að auka hreyfanleika taugavefs 
-þjálfun 
-Fræðsla
- fyrirbyggjandi aðferðir

Námið 
Nám í Manual Therapy þarf að sækja erlendis, til landa sem hafa viðurkennt nám samkvæmt staðli alþjóðasamtaka sjúkraþjálfara með sérgrein í Manual Therapy. Skilyrði fyrir inngöngu er að sjúkraþjálfarinn hafi unnið að minnsta kosti í 2 ár að loknu 4 ára háskólanámi í sjúkraþjálfun. Námið skiptist í fræðilegan, verklegan og klínískan hluta. Áherslan í náminu er á greiningu og meðferð hreyfi- og stoðkerfis. Náminu lýkur með skriflegum og verklegum prófum, ásamt rannsóknarverkefni.

Félag MT sjúkraþjálfara
MT sjúkraþjálfarar stofnuðu félag þann 16. mars 1994 og er það undirfélag í Félagi íslenskra sjúkraþjálfara (FÍSÞ) frá 12. april 1995. Markmið Félags MT sjúkraþjálfara er að vinna að hagsmunum félagsmanna. Félagið er aðili að alþjóðasamtökum sjúkraþjálfara með sérgrein í Manual Therapy (IFOMT).

Veiting sérfræðileyfa í Manual Therapy
Frá árinu 2002 geta MT sjúkraþjálfarar öðlast sérfræðiviðurkenningu samkvæmt reglugerð frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Til að öðlast slíka viðurkenningu þarf viðkomandi MT sjúkraþjálfari að hafa lokið klínísku meistara- eða doktorsnámi og starfað í 2 ár á sínu sérsviði.

 

 

Félag íslenskra sjúkraþjálfara | Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | Sími: 568 7661 | Fax: 514 4001 | physio@physio.is